17. apr 2015

Kjarasamningur FÍA við Flugfélag Íslands hf. samþykktur

Kl 16 föstudaginn 17. apríl 2015 lauk rafrænni kosningu um nýjan kjarasamning FÍA við Flugfélag Íslands hf.

Niðurstaða kosningarinnar er þessi:
Á kjörskrá voru 46 flugmenn, atkvæði nýttu 39 sem gerir 84% kjörsókn.

Svörin skiptast svo:
Já, ég samþykki kjarasamning þann sem undirritaður var 1. apríl sl.     21
Nei, ég samþykki ekki kjarasamninginn     18
Ég sit hjá.    0

Samningurinn telst því samþykktur með 53,8% þeirra sem tóku afstöðu.